157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

orð ráðherra varðandi faglegt mat á jarðgöngum.

[13:17]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V):

Virðulegur forseti. Mér er það til efs að samgönguáætlun hvíli á einni skýrslu sem er nýkomin út. Ég reikna nú með því að stjórnsýslan sé vandaðri en svo að ráðuneytið sjálft, Vegagerðin og fleiri hafi ekki unnið að samgönguáætlun í dágóðan tíma og væntanlega er bara talsvert í samgönguáætluninni frá fyrri ríkisstjórn þannig að allt tal um ófagleg vinnubrögð finnst mér vera skrýtið á þessum tímapunkti.

Ég vil líka að við hugsum um hvernig við erum að vinna hérna. Við erum með nefndadaga í byrjun janúar. Það væri ágætt ef við gætum fengið samgönguáætlun til nefndar, vísað henni til umsagnar og tekið á móti gestum á þeim fundum sem verða nýttir sem nefndadagar í byrjun janúar ef við ætlum að gera eitthvað af viti hérna.