157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

um samgönguáætlun.

[13:32]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Ég hafði beðið um orðið um fundarstjórn forseta áður en hlé var gert á fundi og veit svo sem ekki hvað kom fram á þessum fundi en vil ítreka það að hæstv. forseti upplýsi okkur þingmenn beint um hvað áformað er varðandi dagskrána hérna fram undan, sérstaklega varðandi samgönguáætlun eftir að í ljós kom að hún byggði ekki á réttum forsendum og hlýtur ríkisstjórnin að vilja draga hana til baka. Í ljósi athugasemda hæstv. forseta áðan um að þingflokksformenn ættu einfaldlega að upplýsa þingmenn um hvað væri um að vera bendi ég á að það var þingflokksformaður hæstv. forseta, flokks hæstv. forseta, sem fyrst vakti máls á því að það ætti að setja samgönguáætlun á dagskrá hér fyrir jól. Þá er spurning um samskiptin þar á milli. En það er í raun eðlileg krafa þingsins að beðið verði með umræðu um samgönguáætlunina í ljósi dagskrárinnar, fjárlagavinnu og svo þess sem kom á daginn, að þessi tillaga byggir ekki á réttum forsendum.