157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

um samgönguáætlun.

[13:34]
Horfa

Forseti (Þórunn Sveinbjarnardóttir):

Það er rétt að forseti ítreki það sem áður hefur komið fram á þessum fundi að hv. þingflokksformenn allra þingflokka á Alþingi hafa nákvæmlega sömu upplýsingar um það hvernig þingstörfum verður háttað í dag og eftir helgi. Í þeim samskiptum hefur komið skýrt fram að umrædd samgönguáætlun er ekki á dagskrá í byrjun næstu viku. Þar stendur málið. Hitt er rætt á fundum þingflokksformanna, eins og allir sem sitja á hinu hv. Alþingi vita.