157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[13:42]
Horfa

Ragnar Þór Ingólfsson (Flf) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Fyrstu fjárlög ríkisstjórnar Flokks fólksins, Samfylkingarinnar og Viðreisnar eru ábyrg fjárlög; fjárlög sem taka mið af samfélaginu öllu og fólkinu í landinu. Fjárlögin eru unnin í samræmi við nýja stöðugleikareglu og eru þetta fyrstu fjárlögin sem eru þar undir. Stöðugleikareglan mun tryggja að í framtíðinni munu útgjöld ekki vaxa fram úr hófi og mun stöðugleikareglan einnig tryggja að skuldir lækki og stuðla þannig að lægri vöxtum og verðbólgu. Fjárlögin eru í samræmi við fjármálaáætlun þrátt fyrir áföll í efnahagslífinu. Það helsta sem nefndin lagði áherslu á eru meðferðarúrræðin, endurhæfingin, landsbyggðin og sömuleiðis íslenskan. Ég er afar stoltur af vinnu nefndarinnar. Ég er afar stoltur af meiri hlutanum og því sem við erum að leggja hér fram og ég er líka afar stoltur af að vera hluti af ríkisstjórn Flokks fólksins, Viðreisnar og Samfylkingarinnar.