157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[13:43]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég var ekki einn af þeim sem var fullur eftirvæntingar þegar ný ríkisstjórn tók við völdum. Ég hafði áhyggjur af mörgu en aldrei hefði maður átt von á þessu. Það er með ólíkindum að í fyrstu fjárlögunum svíkja ríkisstjórnarflokkarnir öll sín kosningaloforð. Útgjaldaaukningin á milli ára er hvorki meira né minna en 143 milljarðar, tvöfalt meiri en hún var kosningaárið. Hallinn, þrátt fyrir að allar forsendur hafi verið til að ná hallalausum fjárlögum, verður 25 milljarðar í það minnsta. Skattahækkunargleðin er slík að það eru komnar yfir 30 milljarða skattahækkanir og það er margt sem bendir til þess að sú tala verði hærri. Skuldirnar — það á að auka þær um 82 milljarða á næsta ári. (Forseti hringir.)

Virðulegi forseti. Þetta eru gríðarleg vonbrigði og við förum auðvitað fram á það að þetta verði rætt á milli umræðna í nefndinni vegna þess að þessi umræða er ekki tæmd.