157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[13:45]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því í upphafi að þakka félögum mínum fyrir ágætissamstarf í fjárlaganefnd þó að niðurstaðan sem við erum að greiða hér atkvæði um, niðurstaða fjárlaga, sé alls ekki bjartsýn. Við erum að sjá gríðarlega aukningu útgjalda, um 143 milljarða. Við erum að sjá gríðarlegar skattahækkanir sem eru komnar yfir 30 milljarða. Landsbyggðin, virðulegur forseti, fer mjög illa út úr þessum fjárlögum út af þeim skattahækkunum sem hér eru boðaðar. En það sem sá sem hér stendur hefur hvað mestar áhyggjur af er að væntanlega, miðað við þær forsendur sem gefnar eru í frumvarpinu varðandi vörugjöld og fleira, eru forsendur fjárlaganna brostnar. Þar af leiðandi stenst sú stöðugleikaregla sem hér hefur verið hampað ekki skoðun, því miður.