157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[13:47]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. fjárlaganefnd fyrir samstarfið og segja þetta um þessi fjárlög: Hv. ríkisstjórn er fyrirmunað að taka á útgjaldavexti ríkisins. Enn er aukið á halla ríkissjóðs, skuldir ríkissjóðs eru enn auknar. Nú er svo komið að vaxtagjöld ríkisins eru orðin einn stærsti útgjaldaliðurinn í ríkisfjármálunum. Þessi ríkisstjórn greip ekki gullið tækifæri til að skila hallalausum fjárlögum, gullið tækifæri. Þessi hv. ríkisstjórn hefur sýnt sitt rétta andlit, að vera hreinræktuð vinstri ríkisstjórn og slík stjórnvöld þekkir almenningur, veit hvers á að vænta.