157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[13:49]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Alma D. Möller) (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. fjárlaganefnd fyrir góða og vandaða vinnu. Nefndin hefur hlustað á okkur sem sinnum heilbrigðisþjónustu þar sem nú koma viðbótarfjármunir til tækjakaupa, sjúkraflutninga og fleira. Ég vil sérstaklega nefna málaflokk endurhæfingar þar sem hingað til hefur ekki tíðkast að gefa inn fyrir raunvexti og þar sem skapast hefur innviðaskuld. Nú eru gefnar inn tímabundið 700 milljónir til endurhæfingarstofnana en við vitum að þá fjármuni fáum við margfalt til baka í samfélagið. Þá eru 345 millj. kr. til að efla meðferðarúrræði vegna fíknivanda í takti við þá áherslu ríkisstjórnar. Þessi styrking verður síðan tekin inn í næstkomandi fjármálaáætlun í téðum málaflokki.