157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[13:50]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Í dag greiðum við atkvæði um fyrsta fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar. Ég verð að viðurkenna fyrir mitt leyti að ég hef orðið fyrir nokkrum vonbrigðum með þetta fjárlagafrumvarp. Mér finnst í rauninni athyglisvert að þetta eru tillögur sem myndu koma fram hjá hreinni vinstri stjórn. Ég verð að spyrja mig að því hvernig stendur á því að flokkur eins og Viðreisn ætlar að leggja út í jafn mikla skattheimtu og raun ber vitni og að auka ríkisútgjöld með þeim hætti sem birtist í frumvarpinu. Öðruvísi mér áður brá.

Frú forseti. Viðreisn er gengin í vinstrið.