157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[13:55]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Það er ekki nýtt að stjórnarandstaðan og stjórnarmeirihlutinn hafi ólíka sýn á fjárlagafrumvarpið.[Hlátur í þingsal.] Það væri áhugavert að spóla og hlusta á hvað núverandi stjórnarmeirihluti hefur sagt um fjárlagafrumvörp síðustu ár og nota þau orð og senda þau til þeirra. Ég ætla ekki að gera það á einni mínútu, ég ætla bara að segja að stóra myndin er þessi: Ég held að þetta sé næstmesta aukning í útgjöldum á milli ára síðan 2007 þegar Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn voru í ríkisstjórn á góðæristíma. 9% aukning, mig minnir hún hafi verið 10% þá. 9% aukning, 143 milljarða útgjaldaaukning. Síðan eru tekjurnar teiknaðar upp því þær eru engan veginn í vasa og það vita það allir. Hér er skortur á varfærni á erfiðum tímum, í tollastríði, í stríði, í alls konar vandræðagangi í verðmætasköpun í landinu með vaxandi atvinnuleysi. Þessi fjárlög munu því illa standast tímans tönn þegar fer að líða á næsta ár.