fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Þetta fjárlagafrumvarp ber öll einkenni grímulausrar vinstrimennsku, það er alveg grjóthörð vinstrimennska sem þar birtist. Þá eru mér sérstaklega hugleiknar allar þær gríðarlegu skattahækkanir sem í því birtast og það er ekkert verið að huga að því að verja heimilin og fyrirtækin í landinu í því ástandi sem við blasir. Við sjáum og vitum að það eru teikn á lofti og hagkerfið er að kólna mjög hratt. Það er ekki hugað að því að gefa því súrefni, verja heimilin. Það er verið að afnema samsköttun hjóna. Það er verið að leggja á aukin kílómetragjöld og tolla á bifreiðar og svo mætti áfram telja. Þetta er í rauninni alveg með ólíkindum. Ég tek undir það að það er ótrúlegt að horfa upp á það að þessi vinstri stefna birtist hér svo grjóthörð í boði þessara flokka, Samfylkingar og Flokks fólksins, (Forseti hringir.) en að Viðreisn taki þátt í þessu. Ég sakna þess að fulltrúar flokksins hafi ekki komið meira fram í þessari umræðu (Forseti hringir.) og lýst því yfir hvað felst í þeirra stuðningi við þessar gríðarlegu skattahækkanir.
(Forseti (ÞSv): Forseti minnir á að tíminn við þessa umræðu er ein mínúta.)