fjárlög 2026.
Frú forseti. Nú greiðum við á eftir atkvæði um þetta frumvarp til fjárlaga. Lítið er um ráðdeild eða aðhald í frumvarpinu, öll kosningaloforð brotin. Engar skattahækkanir á almenning, hljómaði fyrir nóvember 2024. Hér er frumvarp sem hækkar skatta um 30 milljarða. Ég er ekki hissa á hegðun Viðreisnar miðað við hegðunina á síðasta þingi þegar Viðreisn tekur þátt í öllum þessum skattahækkunum. Ég er heldur ekki hissa á hegðun Viðreisnar í aðför að landsbyggðinni sem kannski er í DNA flokksins. Ég legg til að andorð ársins verði verðmætasköpunarhaust.