157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[14:02]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Við erum að laga ríkisfjármálin nákvæmlega eins og við sögðumst ætla að gera. Við erum að kæla kerfið nákvæmlega eins og við sögðumst ætla að gera. Fimm vaxtalækkanir á einu ári og verðbólgan ekki lægri síðan 2020. Heimilin í landinu finna sannarlega fyrir þessu og þetta er afraksturinn af ábyrgri hagstjórn. Við tókum við ósjálfbærum og stjórnlausum ríkisfjármálum en snerum stöðunni við. Við lögfestum stöðugleikareglu. Við höfum lækkað ríkisskuldir um 7,5% af vergri landsframleiðslu á aðeins einu ári. Við erum með trúverðuga áætlun um að ná niður hallarekstri hraðar en fyrri ríkisstjórn ætlaði sér, m.a. með 100 milljarða hagræðingu á útgjaldahlið í fjármálaáætlun. Þetta allt saman hefur gjörbreytt, á örfáum mánuðum, væntingum í samfélaginu og aukið traust til hagstjórnarinnar á Íslandi. Hvað þýðir þetta? Þetta þýðir að vextir fara niður, verðbólga fer niður, við erum að laga ríkisfjármálin. Ég veit að stjórnarandstaðan er fúl yfir því en planið er að virka og það sem meira er, sleggjan er að virka. Áfram svona. [Háreysti og hlátur í þingsal.]

(Forseti (ÞSv): Ró í salinn.)