fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Hér gengur maður undir manns hönd til að sannfæra sjálfa sig fyrst og fremst um að þessi fjárlög séu ábyrg. Þessi fjárlög eru hins vegar ekki ábyrg. Fjárlagafrumvarpið sem var lagt fram í september entist ekki nema í nokkrar vikur þegar kallað var eftir miklum breytingum á frumvarpinu. Minnstu breytingar á hagvaxtarspám feykja þessum fjárlögum um koll. Það liggur fyrir. Það er teflt á tæpasta vað með þessum fjárlögum. Það er ekkert svigrúm fyrir óvæntar aðstæður sem upp kunna að koma hér á landi eins og við höfum þekkt það undanfarin ár sérstaklega. Útgjaldavanda, sem svo sannarlega er til staðar í íslenskum ríkisfjármálum, er mætt af þessari ríkisstjórn með útgjaldavexti og með aukinni skattheimtu, mikilli skattahækkun á heimilin í landinu og fyrirtækin. Þessi fjárlög eru ekki vænleg til árangurs fyrir Ísland og verða ekki samþykkt hér á ábyrgð Miðflokksins.