157. löggjafarþing — 42. fundur, 5. des. 2025.
fjárlög 2026.
1. mál
Forseti. Ég held að ríkisstjórnin lifi í einhvers konar efnahagslegum hliðarveruleika því að í dag greiðum við atkvæði um fjárlög Flokks fólksins. Samfylkingin og Viðreisn lofuðu bæði að hækka ekki skatta, draga úr útgjöldum og hafa eitthvert plan. En raunveruleikinn er kosningaloforð Flokks fólksins; hækka skatta, auka útgjöld og enginn talar um að greiða niður skuldir. Það er það sem er að fara að gerast hér í dag. Það er sorgleg staðreynd fyrir alla landsmenn.