157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[14:07]
Horfa

Viktor Pétur Finnsson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Hér er verið að leggja til aukin útgjöld upp á 143 milljarða. Skuldir ríkissjóðs eru ekki að lækka sem kemur verst niður á framtíðarkynslóðum. Útgjöld ríkisins hafa aldrei verið hærri og mér þykir miður að ekki sé verið að búa í haginn fyrir mögru árin. Hér er verið að leggja til afnám samsköttunar hjóna og hækkun á erfðafjárskatti en fjármagnstekjuskattur, sem er skattur á bankareikninga venjulegs fólks, er ekki lækkaður. Aðhaldið er ekkert og báknið stækkar. Ungt fólk vill hægri stefnu og ég óska eftir henni.