fjárlög 2026.
Virðulegi forseti. Þetta var nú með kostulegri ræðum hjá hv. þingmanni. Auðvitað hefur það alltaf verið þannig þegar við ræðum um fjárlög að sitt sýnist hverjum. En hvað sögðu þingmenn Viðreisnar á síðasta kjörtímabili? Hvað sögðu þingmennirnir þá? Það átti að lækka skuldir. Hvað er þessi ríkisstjórn að gera? Ekki að lækka skuldir. (Gripið fram í: Það er verið að lækka skuldir. )Hlustum nú bara á það sem fjármálaráð skrifaði um fjármálaáætlun þessarar ríkisstjórnar. Þar segir að framlögð fjármálaáætlun feli í sér að stjórnvöld ætli sér að fara fetið í að bæta afkomuna. Það eigi fyrst og fremst að færa til aukna skattheimtu og aukin útgjöld en ekki að greiða niður skuldir. Þetta segir fjármálaráð. Í mínum orðabókum snýst þetta um það að hér erum við að auka útgjöld og auka skatta. Það er einfalda skýringin á þessum fjárlögum sem hér liggja fyrir og það ættu allir að skilja það. En að þingmenn Viðreisnar geti selt allt á altari ESB, líka yfirlýsingar sínar um að vera hægri flokkur og vilja greiða niður skuldir — í guðanna bænum. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)