157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[14:11]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Þegar maður hlustar hér á hv. stjórnarliða þá áttar maður sig á því að verðmætasköpunarhaustið er orðið að veruleikafirringarhaustinu. Hér tala menn um það að á síðasta kjörtímabili hafi verið smámál í gangi, Covid og Grindavík. Hvað sögðu stjórnarliðar þá? (Gripið fram í: Meiri útgjöld. )Meiri útgjöld? Það er ekki gert nóg. (Gripið fram í.) Meiri halla. Það er það sem þeir vildu. Og að koma hér og taka við ríkissjóði þar sem lánshæfismatið hefur aldrei verið betra — ef við skoðum skuldir ríkissjóðs í samanburði við önnur ríki þá kemur það einstaklega vel út. Ef við berum okkur saman við Norðurlöndin þá lítur það á flestum mælikvörðum mjög vel út. Kjöraðstæður til að ná hallalausum fjárlögum. Er það gert? Nei. Eins og hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir bendir réttilega á þá er Viðreisn — og ég þakka fyrir ræðu (Forseti hringir.) hv. þm. Ingvars Þóroddssonar. Þetta var eins og Viðreisn fyrir kosningar. Það er öllu (Forseti hringir.) fórnað, öllu fórnað til að komast í ESB; (Forseti hringir.) skattar hækkaðir, útgjöldin hækkuð, virðulegur forseti, hallinn aukinn. Allt (Forseti hringir.) til að komast í ESB.

(Forseti (ÞSv): Ræðutími um atkvæðagreiðslu er ein mínúta og forseti biður hv. þingmenn um að virða ræðutímann og þingsköp Alþingis.)