fjárlög 2026.
Virðulegi forseti. Ég er stoltur af fyrstu fjárlögum nýrrar ríkisstjórnar. Ísland er að rísa upp. Eftir sögulegt tímabil hallareksturs, verðbólgu, hárra stýrivaxta og uppsafnaðrar innviðaskuldar hefur ný ríkisstjórn tekið á þessum áskorunum af festu. Hallarekstur ríkissjóðs er helmingaður milli ára og á næsta ári verða lögð fram hallalaus fjárlög í fyrsta sinn í tíu ár. Verðbólga hefur ekki verið lægri í fimm ár og einu ári eftir að boðað var til kosninga hafa stýrivextir verið lækkaðir fimm sinnum. Skuldir ríkissjóðs hafa lækkað með sölu á Íslandsbanka og uppgjöri á ÍL-sjóði. Tiltekt í ríkisrekstri, sanngjörn auðlindagjöld og aukin verðmætasköpun hafa skapað svigrúm fyrir fjárfestingar í grunnþjónustu og innviðum íslensku þjóðarinnar. Við erum að laga vegina, undirbúa ný göng, fjölga lögreglumönnum, stækka verkmenntaskóla og spítala. Við ætlum að taka utan um fólkið okkar, efla íslenskuna, auka stuðning við íþróttir, forvarnir og meðferðarúrræði. Þessi fyrstu fjárlög ríkisstjórnarinnar sýna fram á ábyrga efnahagsstjórn og sterka velferð fyrir íslensku þjóðina. (Gripið fram í: Heyr, heyr. )