fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Forsvarsmenn þessarar hæstv. ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur hafa keppst við að lofa og ítreka loforð um að skattar verði ekki hækkaðir á almenning, verði ekki hækkaðir á venjulegt fólk. Hér er til umfjöllunar allsherjartillaga um rúmlega 30 milljarða skattahækkun. Ég hvet alla til að máta sig við þessa álagningu. Hverjir eru eiginlega undanskildir? Hver er þessi almenningur hæstv. ríkisstjórnar sem fær ekki á sig skattahækkun frá þessari ríkisstjórn? Spyr sú sem ekki veit.