fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Ég er kátur í dag, ánægður, yfir því að við séum að sjá fjárlög þeirrar ríkisstjórnar sem situr verða að veruleika. Það skiptir miklu máli að við gerum þessi fjárlög að staðreynd. Það er verkefnið okkar í dag. „Hí á þig“ segir stjórnarandstaðan. Hí á ykkur í Viðreisn. Þið eruð komin til vinstri. Hí á ykkur. Ég man eftir svona uppnefni þegar ég var lítill strákur og það var reynt að særa mann eitthvað. Viðreisn er flokkur velferðar. (Gripið fram í: Ég særi þig ekki.) Viðreisn er flokkur sem er tilbúinn að taka utan um samfélagsþjónustuna þó að það kosti einhverja peninga að laga hluti sem hér hafa ríkt í áraraðir. Við skulum ekki gleyma uppsafnaðri innviðaskuld, hún liggur fyrir. Hún er skráð í skýrslum, hver hún er, upp á fleiri hundruð milljarða.