157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[14:16]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Sú mynd sem er að teiknast upp í fyrstu fjárlögum ríkisstjórnarinnar er tiltölulega einföld. Hún er sú að það var ekkert að marka loforðin fyrir kosningar. Man einhver eftir loforðinu: Við munum ekki hækka skatta á venjulegt fólk? Man einhver eftir því, hæstv. forsætisráðherra? Eitt mega þau eiga, eitt er að virka og það er sleggjan, hún er að virka. Hún er bara ekki að virka eins og til stóð. Hún er að virka á verðmætasköpun, hún er að virka á landsbyggðina og hún er að virka á — fyrirgefið, frú forseti, Viðreisn.