fjárlög 2026.
Virðulegi forseti. Mér finnst svo áhugavert að heyra afsakanir Viðreisnar út af þessu fjárlagafrumvarpi þar sem sagt er að þetta sé nú svo sem allt í lagi vegna þess að síðustu fjárlög — eða að fyrri ríkisstjórn hafi gert hitt og þetta. Nú var ég ekki á þingi síðast og ætla ekki að axla ábyrgð eða ræða það framar. Ég ætla hins vegar að benda þingmönnum Viðreisnar og kjósendum þeirra á að ef þetta var svona slæmt, af hverju er þá verið að hækka útgjöld um 153 milljarða? Það er verið að hækka nýja skatta um 25 milljarða. Af hverju gerið þið ekki bara betur sjálf, brettið upp ermar og látið verkin tala í stað þess að gagnrýna það sem áður var og segja að þetta sé í lagi núna vegna þess að þetta hafi verið verra áður?