157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[14:28]
Horfa

Ragnar Þór Ingólfsson (Flf) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Við erum á áætlun. Samkvæmt samþykktri fjármálaáætlun, sem afgreidd var síðastliðið vor, erum við á áætlun. Þrátt fyrir það að hér hafi dunið á þó nokkur efnahagsáföll, bilanir hjá Norðuráli á Grundartanga, lokun PCC á Bakka og fall Play, en við erum á áætlun samhliða því að við ætlum að taka utan um samfélagið okkar, fólkið í landinu. Við erum að greiða ríflega inn á innviðaskuldina sem safnast hefur upp síðustu ár og áratugi. Það er metnaðarfullt. Það er trúverðugt, ekki innantóm loforð heldur raunverulegar aðgerðir. Hér væri hægt að telja upp langan lista. Við erum að tala um landsbyggðina, við erum að byggja við sjúkrahúsið á Akureyri, við erum að byggja við verkmenntaskóla á landsbyggðinni og svo mætti lengi telja. Við erum að fara í raunverulegt átak á húsnæðismarkaði. Við erum á áætlun. Vextir eru að lækka, verðbólga er að lækka. Þessi ríkisstjórn er á áætlun.