fjárlög 2026.
Virðulegi forseti. Við erum hér að greiða atkvæði um tillögu okkar Sjálfstæðismanna sem miða að því að bæta hag fólksins í landinu, heimilanna, sérstaklega þeirra sem þurfa á húsnæði að halda og eru ekki búnir að koma sér þaki yfir höfuðið. Þetta eru ekki bara hugmyndir um skattalækkanir heldur erum við með aðrar hugmyndir líka um að spara á móti þannig að við getum gert mun meira og náð endum saman.
Ég vek athygli á því, virðulegi forseti, að í þessari atkvæðagreiðslu voru stjórnarliðar mjög fljótir á rauða takkann, settu bara persónulegt met. Það er nefnilega margt þarna inni sem þeir lofuðu fyrir síðustu kosningar. Hér sjáum við áhuga þeirra á því að standa við þau kosningaloforð. (Forseti hringir.) Það er miður vegna þess að þetta eru góðar skattalækkanir sem nýtast fólkinu í landinu.