fjárlög 2026.
Frú forseti. Ég held að sé allt í lagi að rifja upp uppruna þessarar aðgerðar. Hún kom til í tíð vinstri stjórnarinnar, ekki þeirrar sem var núna síðast heldur fyrstu vinstri stjórnarinnar. Eftir bankahrunið, í efnahagsþrengingum eins og nú blasa við okkur fram undan, var ákveðið að ráðast í þessar aðgerðir og reyndar gengið lengra með fullri endurgreiðslu. Þessu var viðhaldið þegar ný ríkisstjórn tók við og svo þarnæsta, þangað til farið var að lækka þetta. En hvers vegna réðst vinstri stjórnin í þetta og hvers vegna ákváðu svo aðrir að viðhalda þessu? Það var vegna þess að þetta skilaði ávinningi. Þetta jók umsvifin. Þetta hjálpaði á byggingarmarkaði, þetta hjálpaði fólki að eignast húsnæði aftur. Með öðrum orðum var þetta ekki tap fyrir ríkið heldur ávinningur. Borðleggjandi besta aðgerð sem vinstri stjórnin réðst í, enda hafa aðrar stjórnir fram að þessari leitast við að viðhalda þessu hafandi séð árangurinn. En þessi ríkisstjórn (Forseti hringir.) veit einfaldlega ekki hvað snýr upp og niður eins og við fengum aldeilis að heyra hér í umræðunni í upphafi þessarar atkvæðagreiðslu.
(Forseti (ÞSv): Þingmaðurinn segir?)
Já.