fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Það er rétt sem hér hefur komið fram hjá einstaka þingmönnum að þetta er jákvæð aðgerð er varðar byggingarmarkaðinn og myndi gefa mikið súrefni þar inn. Hins vegar er ekki hægt að taka svona ákvörðun eina og sér út fyrir sviga heldur þarf að horfa á ýmsar aðrar aðgerðir á húsnæðismarkaðnum til að koma honum í jafnvægi. Það var auðvitað alrangt sem hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra fór hér yfir áðan þegar hann talaði um að fyrri ríkisstjórnir hefðu ekki skilað góðu búi. Ég veit ekki betur en að niðurstaða þessa árs verði á pari við það sem fjárlög núverandi ríkisstjórnar ætla að ná í, svona sirka 30 milljarða tap. Það var 19 milljarðar í sumar og gæti hækkað um kannski einhverja tíu en þá erum við á pari, þannig að ríkisstjórnin tók við góðu búi. Það eru hins vegar allt aðrar ástæður fyrir því sem gera það að verkum að húsnæðismarkaðurinn nær ekki jafnvægi. Þetta væri ein leið til þess en hún þarf að vera hluti af miklu stærri mynd þannig að við í Framsókn sitjum hjá.