fjárlög 2026.
Virðulegi forseti. Hér er verið að leggja til að hækka endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu á verkstað upp í 60%. Það er rétt sem hér kemur fram að það vantar fleiri lóðir og annað slíkt inn á markaðinn og því er ekki lagt til að fara í 100% strax. Því verður skynsamlegt að hækka þetta þegar búið verður að fara í vissar aðgerðir. Ég held að þetta sé ein af fáum skattbreytingum í Jóhönnustjórninni sem skilaði raunverulega auknum tekjum í ríkissjóð. Iðnaðarmennirnir sem hafa starfað í þessum geira fundu svo skýrt fyrir þessu og hafa kallað eftir því að þetta úrræði sé áfram til staðar af því að beiðni þeirra um að vinna svarta atvinnustarfsemi dróst gríðarlega saman. Þetta jók skatttekjur ríkissjóðs gríðarlega þannig að þessi skattalækkun skapar ríkissjóði auknar tekjur. Því hvet ég þingheim til að segja já við þessu eins og ég ætla að gera.