157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[14:51]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Úrræðaleysi ríkisstjórnarinnar í húsnæðismálum er algert. Hún lofaði húsnæðispakka í vor, kom með hann í vetur og þegar betur var að gáð reyndist hann fyrst og fremst umbúðir í kringum skattahækkun. Þessi leið sem hér hefur verið farið yfir, m.a. af hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni sem rakti forsöguna ágætlega og hverju þetta hefur skilað, er leið sem gæti hjálpað fólki sem er að reyna að eignast húsnæði. Ég verð að viðurkenna, virðulegi forseti, að maður var að vonast til þess að það yrðu einhver viðbrögð hjá ríkisstjórninni í þá veru að hjálpa fólki að eignast þak yfir höfuðið. En þessi niðurstaða er enn ein staðfestingin á því að það var bara sagt fyrir kosningar. Menn gera annað eftir kosningar. Við Sjálfstæðismenn komum með þessa tillögu. Ég segi já við henni.