157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[14:54]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Við höldum áfram að koma með tillögur sem hjálpa fólki, sérstaklega ungu fólki að eignast húsnæði. Það er áhugavert að horfa á töfluna í ljósi þeirra umræðna sem hér voru áðan þar sem hv. þingmenn Viðreisnar voru að hamast við að reyna að útskýra fyrir okkur að þeir væru alveg eins fyrir og eftir kosningar. Þetta var baráttumál Viðreisnar þegar þau voru í stjórnarandstöðu, gott ef ekki kosningaloforð, en Viðreisn fyrir og eftir kosningar er ekki sami hluturinn. Það er miður, og það er miður að ríkisstjórnin ætli að fella þessa góðu tillögu.