fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Hér er enn ein tillagan frá Sjálfstæðisflokknum um það að létta undir með heimilunum í landinu til þess að hjálpa fólki sem er að fjárfesta í íbúðarhúsnæði. Allt eru þetta aðgerðir til að létta undir með íbúum þessa lands, létta undir með fólkinu í landinu, enn ein aðgerðin. Ég tek undir með hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni að það er sorglegt að horfa hér á töfluna og sjá menn brjóta gömul kosningaloforð, samt ekkert svo gömul, nokkurra mánaða gömul kosningaloforð. Það sést skýrt hér á töflunni hverjir þó standa með fólkinu í landinu.