157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[14:55]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegur forseti. Nú greiðum við atkvæði um að afnema stimpilgjöld. Stimpilgjöld eru gríðarlega ósanngjarn, gamall og úreltur skattur. Nú er mikið rætt um stöðuna á húsnæðismarkaði. Þar þarf að koma betri hreyfingu og hringrás á þannig að núverandi húsnæði nýtist betur og annað slíkt. Þá er þetta frábær aðgerð til að aðstoða fólk við að breyta um húsnæði við breyttar fjölskylduaðstæður og afnema stimpilgjöldin. Þegar við greiðum atkvæði í skattamálum munum við aftur fá tækifæri til að greiða þessu atkvæði en við vildum vera búin að búa í haginn og græja fjárlögin fyrir það. Ég hvet þingheim til að segja já við þessu, sérstaklega þingmenn Viðreisnar, því þegar ég lagði þetta frumvarp hér einu sinni fram komu þingmenn Viðreisnar og trompuðu mig og vildu leggja af öll stimpilgjöld. Hér erum við bara að tala um íbúðarhúsnæði. Svo, Viðreisn, (Forseti hringir.) nú getið þið staðið við loforðin.