157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[14:57]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Þarna erum við með tillögu um það að taka af hækkunina á vörugjöldum sem ríkisstjórnin er búin að boða. Kaldhæðnin er sú að þessi skattahækkun um 7,5 milljarða mun aldrei skila sér í ríkissjóð. Þetta var ekki aðeins óskynsamleg aðgerð heldur á að framkvæma hana með þeim hætti, virðulegi forseti, að nú er verið að hamstra bifreiðar sem aldrei fyrr, ekki síst bensín- og dísilbifreiðar, sem gerir það að verkum að fólk og fyrirtæki borga vörugjöldin fyrir árið í ár en ekki á næsta ári. Forsendur ríkisstjórnarinnar og þetta kauðslega verklag hennar er ekki að skila sér og mun þetta gera það að verkum að þessi títtnefnda stöðugleikaregla fellur. Aðalatriðið er þó þetta: (Forseti hringir.) Hér erum við aftur að koma með tillögur til að létta undir með heimilunum og fyrirtækjunum í landinu og við vonumst til þess að á næstu sekúndum skipti hæstv. ríkisstjórn (Forseti hringir.) um skoðun.