fjárlög 2026.
Virðulegi forseti. Það er auðvitað af mörgu að taka ef vilji er fyrir hendi til að lækka skatta og álögur á fólk og fyrirtæki í landinu. Ég hygg þó að lækkun á þessum skatti sé ein af þeim aðgerðum sem munu hjálpa íslensku atvinnulífi hvað mest og auka samkeppnishæfni þess því þetta leggst víða og ekki síst á atvinnugreinar sem eru í harðri samkeppni við útlönd. Við sjáum að það eru blikur á lofti í atvinnulífinu og þó svo að við eigum alltaf að vona hið besta verðum við að horfast í augu við það að við erum mjög heppin ef allir hlutir verða eins og við viljum hafa þá á næsta ári. Þessi skattalækkun, að lækka kolefnisgjaldið, mun hins vegar hjálpa fyrirtækjunum og létta undir með fólkinu í landinu. Ég segi svo sannarlega já við því.