157. löggjafarþing — 42. fundur, 5. des. 2025.
fjárlög 2026.
1. mál
Forseti. Þetta er svolítið eins og með vörugjöldin að þetta mun að öllum líkindum ekki skila sér. Vörugjöldin munu klárlega ekki skila sér og því vil ég vekja athygli á því að fjárlaganefnd þarf að hefja vinnuna upp á nýtt. Hún þarf að fara að draga úr útgjöldum því að þessi gjöld munu ekki skila sér og það sama á sérstaklega við um vörugjöldin. Það er það sem ég vildi hafa sagt áðan.