157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[15:05]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S):

Virðulegur forseti. Það myndi líklega hjálpa mörgum atvinnugreinum mjög mikið ef kolefnisgjöld drægjust saman. Þau eru orðin mjög íþyngjandi. Ég held að það lýsi því best hve kolefnisgjöld eru orðin íþyngjandi í margs konar rekstri að Landhelgisgæsla Íslands siglir með sín varðskip til Færeyja til að taka olíu til að sleppa við kolefnisgjöld og halda sér á fjárhagsáætlun. Til að spara skattana og sleppa við þessi íþyngjandi gjöld fer ríkisfyrirtækið sjálft, ríkisstofnunin sjálf, til Færeyja svo að hún sleppi við gjöldin. Eftir sitja landsmenn og þurfa að borga brúsann. Þetta er því okkar tillaga, að reyna að létta byrðarnar á atvinnulífinu í landinu.