fjárlög 2026.
Virðulegi forseti. Kílómetragjald er ekki ný hugmynd og það hafa lengi verið fyrirætlanir og skoðanir á því hvernig hægt sé að koma því fyrir. Ástæðan fyrir því að það hefur ekki komið fram er einfaldlega sú að þegar menn hafa skoðað útfærsluna hafa menn séð að það þarf að huga vel að öllum þáttum til þess að þetta geti bæði skilað því sem það á að skila en ekki síður að það komi ekki illa niður á fólki og fyrirtækjum sem menn vilja ekki að verði sérstaklega fyrir þessu. Því miður er það þannig, virðulegi forseti, að þessi ríkisstjórn vinnur með þeim hætti að hún talar hvorki við kóng né prest, er ekki í samráði og samvinnu við þá aðila sem þarf að ræða við en kemur síðan fram með vanhugsaðar tillögur. Hér er tillaga um að lækka kílómetragjaldið um 3,3 milljarða kr. og ég hvet þingheim til að greiða atkvæði með því.