157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[15:08]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Hér er vikið að ríkisstjórnarmáli sem var að koma út úr nefnd í morgun, í dag, og á eftir að fara í 2. umræðu. Það er í grófum dráttum algerlega vanbúið og menn ættu að sjá ljósið í því að fresta þessu máli. Þetta mál, kílómetragjald, kemur til umræðu í næstu viku. Miðflokkurinn mun gera sitt allra besta til að aðstoða ríkisstjórnina við að fresta í það minnsta málinu, fresta gildistöku þess þannig að það taki ekki gildi núna um áramótin vegna þess að þetta mál þarf auðvitað að ræða miklu betur en hefur tekist við 1. umræðu. Öll 2. umræða er eftir. Ég styð það því heils hugar að menn þiggi þær breytingartillögur sem hér eru lagðar fram um að þessar tekjur, sem ég held reyndar að séu að auki mögulega ofmetnar, séu ekki til þess fallnar að gert sé ráð fyrir þeim á næsta ári.