fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Kílómetragjaldið og útfærsla þess er vanhugsuð. Það er í fyrsta lagi áætlað að það muni kosta hundruð milljóna fyrir skattgreiðendur að innheimta þetta gjald. Í öðru lagi er þetta gjald að sjálfsögðu, eins og allt annað, greitt af íbúum landsins, heimilunum og ekki síst fyrirtækjunum í landinu. Þetta mun hækka vöruverð á öllum vörum af því að kostnaður við alla aðflutninga og aðföng mun hækka með kílómetragjaldinu. Og hvað þýðir það? Jú, ef vöruverð hækkar mun verðbólgan líklega hækka.
Ég velti því svo fyrir mér hvort hv. stjórnarþingmenn og hæstv. ráðherrar hafi ekki talað við fulltrúa bílaleiganna sem hafa goldið varhuga við því að það verði erfitt í framkvæmd að innheimta kílómetragjaldið eins og t.d. á bílaleigubílum. Þessa hluti tel ég að hæstv. ríkisstjórn verði að staldra við. Það þarf að útfæra þetta betur og helst náttúrlega falla frá útfærslu á kílómetragjaldi og hugsa aðrar leiðir.