157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[15:15]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Í umræðum hér áðan kom á óvart að ráðherra í hæstv. ríkisstjórn kom fram og hafði áhyggjur af verðbólgunni og hélt í fullri alvöru að tillagan hefði svo neikvæð áhrif og myndi auka svo verðbólguna að ekki væri hægt að samþykkja hana. Gott og vel. Við ættum að ræða það. Þessi tillaga mun hjálpa til við að berjast gegn verðbólgu. Skýrara verður það ekki; hætta við að hækka krónutölugjöldin í botn eins og þessi hv. ríkisstjórn ætlar að gera.

Virðulegi forseti. Ef það er eitthvað á bak við það hjá hv. þingmönnum stjórnarliðsins að þeir vilji berjast gegn verðbólgunni þá greiða þeir atkvæði með þessari tillögu sem hjálpar fólkinu í landinu, sem þarf að borga þessa hækkun á krónutölugjöldum, (Forseti hringir.) og mun hjálpa til við að halda verðbólgunni niðri.