fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Það var athyglisverð skýrsla sem var gefin út af Viðskiptaráði fyrr á þessu ári þar sem fram kom að hlutdeild Ríkisútvarpsins á fjölmiðlamarkaði er hrópandi hærri en systurstofnana Ríkisútvarpsins á hinum Norðurlöndunum. Hlutdeildin er 27% á móti 6–11% á Norðurlöndunum. Það segir okkur að það er svigrúm til að minnka hlutdeild RÚV á fjölmiðlamarkaði til að koma til móts við og reyna að gefa súrefni til frjálsra fjölmiðla sem berjast í bökkum um allt land. Það er tímaskekkja árið 2025 að vera með 300 manna ríkisstofnun sem flytur fréttir og heldur úti hlaðvarpsþáttum.