157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[15:24]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Ég vil koma hér aðeins upp og ræða erfðafjárskattinn og þær breytingar sem hér eru boðaðar. Ég verð að taka undir með þeim sem hér kom áðan og ræddi þetta, hv. þm. Vilhjálmi Árnasyni, að það er sérstakt hvernig þessi hækkun kemur til á milli umræðna og hef ég alla vega ekki náð þeim útskýringum sem hafa verið gefnar á því. Hins vegar vil ég koma hingað upp sömuleiðis og fagna þeirri breytingu sem hefur verið boðuð varðandi erfðafjárskattinn í öðru máli sem við höfum mikið rætt hér í þinginu og var rætt hér í aðdraganda fjárlaga. Það er góð breyting en þessi er verr skiljanleg.