fjárlög 2026.
Virðulegi forseti. Þetta er eitt af því sem þarf að skoða betur áður en við afgreiðum fjárlögin. Það hafa mjög skrýtnir hlutir verið í gangi þegar kemur að erfðafjárskattinum þetta haustið. Ég fullyrði það, virðulegi forseti, að það þekkist hvergi í þeim löndum sem við berum okkur saman við að ríkisstjórn komi fram með frumvarp sem miðar að því að hækka skatta, í þessu tilfelli erfðafjárskatt, án þess að kynna það sérstaklega. Það er grafalvarlegt mál. Varðandi hækkun upp á 2,1 milljarð frá september fram í nóvember á þessum skatttekjum, þær skýringar — við getum sagt að það þurfi að skýra þær skýringar. En aðalatriði málsins er þetta: Við þurfum að vakta þessa ríkisstjórn þegar kemur að skattahækkunum. Erfðafjárskattur (Forseti hringir.) er borgaður af eignum sem er búið að borga alla skatta af og kemur illa niður (Forseti hringir.) á mörgum. Ég held að ég fari bara úr stólnum, virðulegi forseti.