fjárlög 2026.
Virðulegi forseti. Ef ég skil rétt erum við að greiða atkvæði um áfengisgjöld. Það á að mega hafa gaman á Íslandi. Ég ætla að fá að vitna í skemmtilegt vídeó sem ég sá birt á samfélagsmiðlum frá ungliðahreyfingu Viðreisnar og fjármálaráðherra þar sem akkúrat þessu var mótmælt. Svo er næst verið að leggja skatta á nikótínvörur, rafrettuvökva og tóbaksgjöld. Þetta er skattur á venjulegt fólk. Þetta er fólk sem vill taka eigin ákvarðanir, lifa sinn dag, eigin lífi. Það þarf ekki að skattleggja allt.
(Gripið fram í: Heyr, heyr.)
(Forseti (ÞSv): Forseti minnir hv. þingmenn á að greiða atkvæði helst áður en þeir fara upp og gera grein fyrir atkvæði sínu.)