fjárlög 2026.
Frú forseti. Varðandi varaflugvallargjaldið sem var samþykkt 1. nóvember 2023, og var búið að vera lengi í vinnslu, þá kemur fram ákveðið ósamræmi í textanum frá hv. meiri hluta fjárlaganefndar, þar kemur kemur fram rétt orðalag, „að standa straum af uppbyggingu varaflugvalla á landinu“, það eru alþjóðaflugvellirnir. En í nýrri samgönguáætlun — þess vegna vil ég vekja athygli á þessu máli — er búið að breyta tilgangi laganna og nú er farið að tala um allt innanlandsflugvallakerfið, einhvern leka þarna á milli. Þetta er allt annað en var farið af stað með varðandi alþjóðaflugvallakerfið sem er raunverulega fyrst og fremst þetta stóra hlutverk í stóru myndinni, varaflugvellirnir og uppbygging þeirra, Reykjavíkurflugvöllur, Egilsstaðir og Akureyri, við Keflavík. Þetta er stóra myndin. Ég vildi vekja athygli á því að þarna ber síðan fjárlagaumræðunni ekki saman við það sem kemur fram í nýrri samgönguáætlun.