157. löggjafarþing — 42. fundur, 5. des. 2025.
fjárlög 2026.
1. mál
Virðulegur forseti. Það hefur verið djúpt á hagræðingu hjá hæstv. ríkisstjórn þannig að hér er kjörið tækifæri fyrir ríkisstjórnarmeirihlutann að bæta þar úr. Við erum með ýmsar tillögur sem miða að því að sameina sem hefur verið gert með góðum árangri áður. Hér var mikið talað um það fyrir kosningar og þegar þessi ríkisstjórn tók við að hún ætlaði að fara að hagræða. Hér er kjörið tækifæri fyrir ríkisstjórnina að samþykkja sameiningu og hagræðingu.