157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[15:38]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Við höldum áfram að koma fram með tillögu til að hjálpa ríkisstjórninni að ná hagræðingunni sem hún talaði einhvern tímann um. Þetta er í samræmi við frumvarp sem búið er að tala fyrir í þinginu og 1. flutningsmaður var hv. þm. Jón Gunnarsson. Nú er tækifærið, virðulegur forseti, fyrir ríkisstjórnarmeirihlutann að greiða atkvæði með hagræðingu og ég bíð spenntur.