fjárlög 2026.
Virðulegi forseti. Ef það er í alvöru ætlun stjórnvalda að ná endum saman og skila hallalausum fjárlögum þá þurfa menn að forgangsraða því það er ekki hægt að gera allt. Það getur verið snúið, virðulegi forseti, en það þarf að taka ákvarðanir um það. Það liggur alveg fyrir að það er ágætissátt um það, að ég tel, að t.d. auka verulega fjármagn til varnarmála og auðvitað vona ég að það sé samstaða um það að ná endum saman og fara að byrja að greiða niður skuldir þótt það sjáist ekki í þessu fjárlagafrumvarpi. Þess vegna er þessi tillaga til komin frá okkur Sjálfstæðismönnum, þ.e. að lækka framlögin til utanríkisþjónustunnar og stjórnsýslunnar. Það er hægt, ég þekki það, að hagræða þar eins og annars staðar en til að svo megi verða verður að vera til þess pólitískur vilji.