157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[15:44]
Horfa

Pawel Bartoszek (V):

Virðulegi forseti. Já, þetta er athyglisverð tillaga, sérstaklega í ljósi þess að við áttum hérna mjög nýlega langt samtal um íslenska hagsmunagæslu í kísiljárnsmáli sem reyndar hefur verið lýst með þeim hætti að íslenska utanríkisþjónustan hafi þar staðið sig brjálæðislega vel af fulltrúum þeirra framleiðenda sem þar um ræðir. En ég tel að það sé skynsamlegt að við höldum áfram að bæta í og efla okkar hagsmunagæslu á alþjóðasviðinu og tel í því ljósi ekki skynsamlegt að skera niður útgjöld til utanríkisþjónustunnar á þessu stigi.