fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Hér undir þessum lið eru tvær aðgerðir eða tvær tillögur, 1,5 milljarður samtals til aukningar. Annars vegar erum við að mæla fyrir 1 milljarði í neytendamarkaðssetningu fyrir íslenska ferðaþjónustu, eitthvað sem hefur verið kallað gríðarlega mikið eftir af hálfu ferðaþjónustunnar og aðila sem eru tengdir henni, og hins vegar erum við með átak upp á 500 millj. kr. til eflingar á íslenskri framleiðslu, iðnaði, matvælum, þar á meðal í landbúnaði, til þess að í raun og veru kynna okkar frábæru vöru, sem sagt matvælin okkar og matargerðina og reyna að koma sterkari stoðum og öflugri festu í það að hægt verði að markaðssetja Ísland sem matvælaland, þannig að þú komir til Íslands í matarupplifun vegna þess að við eigum frábært hráefni og frábæra fagmenn til þess að matreiða fyrir okkar erlendu gesti.